Lögreglan á Suðurnesjum biðlar til fólks að vera á varðbergi gagnvart skilaboðum sem fólk hefur fengið í síma sína. Það er aldrei of varlega farið og svikapóstar af ýmsu tagi orðnir býsna algengir eins og þeir sem fylgjast með fréttum vita.
Meðfylgjandi orðsending og mynd birtist á Facebook-síðu lögreglunnar í dag.
„Við viljum biðla til fólks sem fær skilaboð sem þessi að opna þau ekki heldur eyða þeim. Almennt eigum við ekki að treysta svona skilaboðum sem berast reglulega,“ segir í skeytinu en í umræddum skilaboðum er látið eins og þau séu frá Arion banka.
Það er alls ekki raunin eins og fram kemur í færslu lögreglu heldur er um að ræða óprúttna aðila sem eru að reyna að komast yfir upplýsingar fólks í von um skjótfenginn gróða.