Lögregla skoðar hvort Íslendingar séu í klámframleiðslu

Kynferðisbrotadeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu skoðar nú hvort efni sem Íslendingar setja á samfélagsmiðilinn Onlyfans flokkist sem framleiðsla og sala á klámi.

Fréttablaðið greinir frá þessu í dag. Onlyfans hefur verið talsvert í umræðunni undanfarnar vikur og hafa nokkrir Íslendingar stigið fram og greint opinberlega frá því að þeir selji aðgang að efni í gegnum síðuna, þar á meðal erótískt efni sem hugsanlega er hægt að flokka sem klám.

Ævar Pálmi Pálmason, yfirmaður kynferðisbrotadeildar lögreglunnar, segir við Fréttablaðið að það sé verið að taka stöðuna á þessu ásamt öðrum verkefnum. Þó sé það staðreynd að það sé skilgreiningaratriði hvað er klám og hvað ekki.

Hegningarlögin eru nokkuð skýr hvað þetta varðar en samkvæmt þeim skal hver sá sem býr til eða flytur inn í útbreiðsluskyni, selur, útbýr eða dreifir á annan hátt út klámritum, klámmyndum eða öðrum slíkum hlutum sæta sektum eða fangelsi allt að sex mánuðum.

Ævar segir að forgangsröðun kynferðisbrotadeildarinnar sé þannig að lögð er áhersla á rannsóknir á nauðgunum, brotum gegn börnum og öðrum kynferðisbrotum þar sem verið er að brjóta á einhverjum.

„Það er ekki þar með sagt að ef það er verið að fremja eitthvað sem við teljum smávægileg brot fyrir framan nefið á okkur þá förum við ekki í þau,“ segir Ævar sem segir að líklega væri hægt að gera tekjur upptækar af ávinningi mögulegra brota.

„Ég myndi halda það. Það er verið að afla tekna með ólögmætum hætti bara eins og ef það væri verið að framleiða kannabis. En ég þori ekki alveg að fara með það vegna þess að netvettvangurinn er hýstur annars staðar, þar sem klám er ekki endilega ólöglegt,“ segir Ævar.