Lögreglan á Austurlandi skaut vopnaðan mann á Egilsstöðum í gærkvöldi eftir að maðurinn skaut í átt að lögreglu. Maðurinn var fluttur með sjúkraflugi til Reykjavíkur og er ekki vitað með ástand hans, að sögn lögreglu.
Tilkynning um málið barst lögreglu laust eftir klukkan 22 í gærkvöldi og var tilkynningin á þá leið að maður væri vopnaður skotvopni í íbúðarhúsi og hefði uppi hótanir um að beita því. Lögregla fór á vettvang og heyrðust skothvellir meðan viðkomandi var inni. Ekki var á þeim tímapunkti vitað hvort fleiri væru í húsinu.
Í tilkynningu frá lögreglu í nótt kemur fram að maðurinn hafi komið vopnaður út úr húsinu eftir um klukkustund og skaut hann þá að lögreglu. Maðurinn var í kjölfarið skotinn af lögreglu.
Í tilkynningunni kemur fram að vegna rannsóknarhagsmuna geti lögregla ekki tjáð sig frekar um málið á þessu stigi. Fer það nú til rannsóknar hjá embætti Héraðssaksóknara.