Lög­regla sendir skýr skila­boð: Hættið að sprengja eftir klukkan 22 á kvöldin

Lög­reglan á höfuð­borgar­svæðinu hefur sent frá sér á­minningu vegna skot­glaðra ein­stak­linga sem valda öðrum tals­verðu ó­næði seint á kvöldin.

„Undan­farna daga höfum við fengið mikið af til­kynningum vegna ó­næðis af völdum skot­elda­sprenginga seint á kvöldin og langt fram eftir nóttu á höfuð­borgar­svæðinu,“ segir í til­kynningu sem lög­regla birti á Face­book-síðu sinni.

Af þessu til­efni minnir lög­regla fólk á að í reglu­gerðinni um notkun skot­elda segi meðal annars að á því tíma­bili sem al­menn notkun skot­elda er leyfð, 28. desember til 6. janúar, sé með­ferð þeirra þó alltaf bönnuð frá kl. 22.00 til kl. 10.00 daginn eftir að undan­skilinni ný­árs­nótt.

Lög­regla minnir svo að lokum á þetta:

„Ó­heimilt er að breyta á nokkurn hátt skot­eldi þannig að hann hljóti aðra eigin­leika en fram­leiðandi hans ætlaðist til. Við með­ferð og vörslu skot­elda skal ítrustu var­úðar gætt og ætíð farið eftir skráðum leið­beiningum.“

Undanfarna daga höfum við fengið mikið af tilkynningum vegna ónæðis af völdum skoteldasprenginga seint á kvöldin og...

Posted by Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu on Miðvikudagur, 30. desember 2020