Lögreglan á Austurlandi hefur sent frá sér tilkynningu vegna hótana sem bárust Katrínu Jakobsdóttur forsætisráðherra í dag.
Katrín var stödd á Seyðisfirði ásamt öðrum ráðherrum þegar fréttir bárust af því að henni hefðu borist hótanir. Tilkynning lögreglu er svohljóðandi:
„Upplýsingar bárust lögreglu fyrr í dag um hótanir er áttu að hafa beinst að forsætisráðherra þar sem hann var þá staddur á Seyðisfirði ásamt þremur ráðherrum öðrum. Sá er borinn var fyrir hótuninni reyndist þá ekki vera á Seyðisfirði. Lögregla hefur nú rætt við hann og telur eftir þær samræður að engin ástæða sé til frekari aðgerða gagnvart honum eða viðbragða að öðru leyti.“
Fréttablaðið ræddi við umræddan mann í dag en í viðtalinu sagðist hann ekki vera sáttur við atburði síðustu daga. Sagði hann meðal annars að aurskriðurnar á Seyðisfirði í síðustu viku væru ekki náttúruhamfarir heldur megi rekja þær til vanrækslu stjórnvalda.
Íbúar og yfirvöld hafi vel vitað af hættunni og telur hann að það hefði verið hægt að koma í veg fyrir svo mikla eyðileggingu.