Lög­regla sendir frá sér til­kynningu vegna at­viksins í Ás­mundar­sal – Formleg rann­sókn hafin

Lög­reglan á höfuð­borgar­svæðinu hefur sent frá sér til­kynningu vegna at­viksins í Ás­mundar­sal á Þor­láks­messu þar sem Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra var á meðal gesta.

Í til­kynningunni kemur fram að lög­regla rann­saki nú nokkurn fjölda mála vegna hugsan­legra brota á sótt­varna­lögum og varðar eitt þessara mála at­vikið í Ás­mundar­sal sem mikið hefur verið spurt um, að sögn lög­reglu.

„Form­leg rann­sókn er hafin í málinu, sem m.a. felst í því að verið er að yfir­fara upp­tökur úr búk­mynda­vélum lög­reglu­manna sem mættu á staðinn með til­liti til brota á sótt­vörnum. Ekki er unnt að greina frekar frá rann­sókn málsins að svo stöddu.“

Bjarni Bene­dikts­son var í gleð­skapnum þegar lög­regla kom á vett­vang en mjög hefur verið þrýst á hann að segja af sér sem ráð­herra vegna málsins. Bjarni hefur beðist af­sökunar en telur ekki til­efni til að segja af sér.