Lögregla minnir fólk á kurteisi: „Líklega er þetta athugunarleysi“

„Kurteisi og tillitssemi,“ er yfirskrift færslu sem birtist á Facebook-síðu lögreglunnar á Vestfjörðum í dag. Þar eru ökumenn og vegfarendur hvattir til að sýna samferðafólki sínu tillitsemi og kurteisi og nefnir nokkur atriði í því samhengi.

Nú þegar sumarið er á næsta leiti fjölgar hjólreiðamönnum í umferðinni og er það hið besta mál. Það skiptir þó máli að samskiptin milli gangandi, hjólandi og akandi séu í lagi eins og lögregla bendir á í færslu sinni:

„Reiðhjólafólk getur valið hvort það fer um á gangstéttum/göngustígum eða á götunni. Ef reiðhjólafólk velur gangstéttir eða göngustíga ber að sýna gangandi vegfarendum þar tillitssemi. Ef reiðhjólafólk fer hratt um, eins og á svk. racerhjólum, er eðlilegt að vera á akbraut, en þó lengst til hægri á akbraut. Enda gæti verið hættulegt fyrir gangandi vegfarendur ef hraðskreið reiðhjól fara þar um.“

Lögregla segir að það sé að sama skapi mikilvægt að ökumenn sýni reiðhjólafólki tillitssemi og í því sambandi er minnt á að samkvæmt umferðarlögum má ekki aka nær reiðhjóli og léttu bifhjóli en 1,5 metra.

„Margir ungir og óreyndir vegfarendur fara um, þ.e.a.s. gangandi eða hjólandi börn. Lögreglan vill minna ökumenn á að gæta varúðar í návist þessara samborgara okkar.“

Loks vill lögregla minna fólk á að ofnota ekki flautuna á ökutækjum sínum, en eitthvað virðist hafa borið á því.

„Þá viljum við hvetja ökumenn að gæta hófs í notkun á bílflautu. Flauta ekki að kveldi til eða nóttu a.m.k. í íbúðahverfum. Nú nýlega barst lögreglu kvörtun um að sumir ökumenn sem eru að sækja börn sín við leiksvæði, s.s. ærslabelgi á Ísafirði flautuðu til að gera börnum sínum viðvart. Líklega er þetta athugunarleysi. Ekki ætlunin að ónáða íbúa á þessu svæði.“

Kurteisi og tillitssemi. Lögreglan vill hvetja ökumenn og vegfarendur almennt til að sýna samferðafólki tillitssemi og...

Posted by Lögreglan á Vestfjörðum on Miðvikudagur, 5. maí 2021