Lögreglan á Suðurnesjum leitar liðsinnis almennings vegna leitar að 59 ára gömlum bandarískum ferðamanni, Scott Estill, sem ekkert hefur spurst til síðan í gær.
Scott varð viðskila við eiginkonu sína á gossvæðinu í Geldingadölum um miðjan dag í gær og hefur leit að honum staðið yfir síðan, án árangurs. Tugir björgunarsveitarmanna, leitar- og sporhundar auk þyrlu Landhelgisgæslunnar hafa tekið þátt í leitinni.
Í skeyti frá lögreglu kemur fram að Scott sé grannvaxinn og vel á sig kominn. Birtar eru tvær ljósmyndir af honum og er önnur þeirra, sem sýnir hann á hlið, tekin í gær. Er hann í umræddum fatnaði sem sést á myndinni.
Þá er hann með DSLR-myndavél með litríkri hálsól og í brúnum gönguskóm. Síðast sást til hans við hraunkantinn austast í Meradölum þar sem hann varð viðskila við konu sína.
Lögreglan beinir þeim tilmælum til þeirra sem hugsanlega muna eftir að hafa séð hann að skoða meðfylgjandi kort af gossvæðinu sem fylgir færslu lögreglu.
„Búið er að útbúa kortið með reitum og viljum við biðja ykkur um að setja X á þann stað þar sem þið sáuð hann, eða láta okkur vita um reit og númer og senda okkur skilaboð hér á Facebook eða hafa samband við 1-1-2. Vinsamlega deilið sem víðast,“ segir lögregla í færslu sinni.