Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði afskipti af manni sem mótmælti bólusetningum barna við Laugardalshöll í morgun. Þetta kemur fram á vef Fréttablaðsins.
Bólusetningar barna á aldrinum 12 til 15 ára hófust í gær og í dag eru yngstu börnin í þessum aldurshópi bólusett, börn fædd 2008 og 2009.
Haft er eftir sjónarvotti að maðurinn hafi öskrað ókvæðisorðum að fólkinu í röðinni. „Hann spurði hvort fólk áttaði sig ekki á því að það væri að sprauta einhverju eiturefni inn í börnin og sagði að foreldrar væru ekki nægilega upplýstir til að taka ákvarðanir.“
Ragnheiður Ósk Erlendsdóttir, framkvæmdastjóri hjúkrunar hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, sagðist í gær vona að ekki kæmi til þess að mótmælendur gerðu vart við sig við höllina.
„Ég á nú ekki von á því að þessi hópur fólks taki sér stöðu við Laugardalshöllina þar sem börnin sjálf eru. Það er von mín að þeir mótmæli einhvers staðar annars staðar, ef til þess kemur, þá einhvers staðar þar sem yfirvöld eru til húsa,“ sagði Ragnheiður við mbl.is í gær.
Maðurinn sem mótmælti í morgun var einn á ferð og var hann leiddur upp í lögreglubíl.