Lögregla búin að bera kennsl á líkamsleifar sem fundust í Vopnafirði

Kennslanefnd ríkislögreglustjóra hefur borið kennsl á líkamsleifar sem hafði rekið á land í Vopnafirði þann 1. apríl síðastliðinn.

„Í samráði við og með aðkomu kennslanefndar ríkislögreglustjóra voru þær sendar til réttarlæknisfræðilegrar rannsóknar á Landspítala og til DNA greiningar í Svíþjóð. Niðurstaða DNA greiningar liggur fyrir,“ segir í tilkynningu frá lögreglunni á Austurlandi.

Um er að ræða líkamsleifar skipverja er féll 18. maí í fyrra fyrir borð af fiskiskipinu Erling KE-140 er það var á leið til hafnar í Vopnafirði.  Í samráði við ættingja er nafn hins látna tilgreint hér en hann hét  Axel Jósefsson Zarioh og var fæddur árið 2001.