Lög­mæti ein­angrunar lagt fyrir dóm: „Við erum að tala um hvort þessi PCR-próf séu mark­tæk“

Fimm ein­kenna­lausir ein­staklingar í ein­angrun ætla láta reyna á lög­mæti ein­angrunarinnar fyrir Héraðs­dómi Reykja­víkur á morgun. Þetta kemur fram ífrétt Frétta­blaðsins.

Arnar Þór Jóns­son, lög­maður fimm­menninganna, segir þar að verið sé að láta reyna á hvort PCR-próf eitt á sér sé nóg til að frelsis­svipta fólk.

„Þetta snýst um það að þessir á­gætu ein­staklingar eru í ein­angrun út af þau hafa mælst já­kvæð á PCR-prófum en eru ein­kenna­laus. Í rauninni er verið að láta reyna á það hvort að sá grunnur, sem sótt­varnar­læknir byggir allar þessar að­gerðir sínar, á eigi sér vísinda­lega trausta stoð,“ segir Arnar í sam­tali við Frétta­blaðið.

„Þá erum við að tala um það hvort þessi PCR-próf séu þannig vísinda­lega mark­tæk að það sé hægt að svipta ein­kenna­lausa ein­stak­linga frelsi á þeim grunni. Ég mun byggja á því að morgun að það sé nú bara þannig að víða er­lendis hafa þessi próf verið talin ó­mark­tæk og ég ætla láta reyna það,“ bætir Arnar við.

Í dag séu 3.526 í ein­angrun og 5.109 í sótt­kví sem er met en á jóla­dag greindust 472 með kórónu­veiruna.

Arnar segir sam­fé­lagið komið á þann stað að það megi ekki efast um neitt sem sótt­varna­læknir gerir en það sé hins vegar mikil­vægt að láta reyna á vald­mörk vald­hafa.

„Við sem borgarar hljótum að hafa rétt og í raunar skyldu til að láta reyna á það hvar vald­mörk fram­kvæmda­valdsins eru gagn­vart mér og þér,“ segir Arnar.