Lög­maðurinn Árni Helga segir Björg­vin mega spila: „Full­kom­lega á­stæðu­laust að taka Björg­vin úr liðinu í dag“

Lög­maðurinn Árni Helga­son segist hafa fundið lausn á því hvernig hægt væri að láta Björg­vin Pál Gústafs­son mark­mann ís­lenska lands­liðsins spila á móti Dönum í dag þrátt fyrir co­vid-smit.

„Ó­keypis lög­fræði­á­lit til HSÍ: Eftir að hafa kynnt mér reglur um hand­bolta­velli og mark­teiginn er full­kom­lega á­stæðu­laust að taka Björg­vin Pál úr liðinu í dag,“ skrifar Árni

„Ef hitt liðið fer að settum reglum leiksins og heldur sig innan línu er alltaf gætt að 2 m reglu og engin smit­hætta,“ bætir hann við og deilir með mynd af víta­teignum sem má sjá hér að neðan.