„Það er ótrúlega auðvelt að taka einstakling af lífi á netinu í dag,“ sagði Saga Ýrr Jónsdóttir, lögmaður Sölva Tryggvasonar fjölmiðlamanns, í Bítinu á Bylgjunni í morgun.
Eins og Fréttablaðið greindi frá í gær hafa tvær konur kært Sölva til lögreglu vegna meints ofbeldis. Lögmaður kvennanna, Kristrún Elsa Harðardóttir, sendi yfirlýsingu þess efnis frá sér í gærkvöldi. Mikið hefur verið fjallað um málið á samfélagsmiðlum, þar sem ásakanir gegn Sölva komu fyrst fram um liðna helgi.
Í viðtalinu var Saga Ýrr gagnrýnin á umræðuna á samfélagsmiðlum, en ítrekaði að hún væri að tala almennt en ekki sérstaklega um mál Sölva Tryggvasonar.
Saga sagði að nú væri komið fram að komnar væru fram kærur og það væri rétti farvegurinn fyrir málið. „Þar getur hann tekið til varna. Það er ekki hægt að taka til varna á samfélagsmiðlum. Þú vinnur aldrei þá maskínu, það er ekki hægt,“ sagði Saga sem virtist mikið niðri fyrir þegar hún sagði að Sölvi væri kominn inn á geðdeild.
„Hann er kominn inn á geðdeild, hann er búinn, hann er alveg búinn. það er ekkert grín þegar kommentakerfið glóir, skilaboðin dynja, þetta tekur á.“