Lögmaður Ingós segist hafa fengið ótrúleg viðbrögð: „Það er alveg augljóst að fólki finnst þetta ekki rétt“

Auður Björg Jónsdóttir, lögmaður Ingós Veðurguðs, vill meina að niðurstaða Héraðsdóms Reykjavíkur frá því í gær sé galin, og að dómurinn sé mótsagnakenndur. En líkt og greint hefur verið frá var Sindri Þór Sigríðarson sýknaður í meiðyrðamáli Ingós.

Fréttablaðið greinir frá þessu. Í gær sagðist Auður vera undrandi yfir niðurstöðunni, og í dag segist hún hafa fengið gríðarleg við dómnum. Hún heldur því fram að hún hafi aldrei fengið jafn mikil viðbrögð frá kollegum sínum. „Það er alveg augljóst að fólki finnst þetta ekki rétt.“ er haft eftir henni.

Þá var Auður spurð út í hvernig hún túlkaði dóminn og þá sagði hún að það væri voða erfitt: „hann er svolítið mótsagnakenndur í raun.“

Hún segir það að ummæli Sindra eigi að hafa verið sett fram í góðri trú sé ekki í neinu samræmi við dómaframkvæmd. Og máli sínu til stuðnings vísar hún til Hlíðarmálsins þar sem ummæli tveggja kvenna í tengslum við málið voru dæmd dauð og ómerk.

Auður segir síðan að það yrði galið fyrir Ingó að áfrýja ekki málinu, en tekur þó fram að hann sé ekki búinn að taka ákvörðun varðandi það.

Hægt er að lesa frétt Fréttablaðsins um málið í heild sinni hér.