Logi vill breytingar strax: Síðasta vika var furðuleg – Á rauðu ljósi alla Miklubrautina

„Stundum er eins og það sé starfsmaður í þjálfun að stjórna umferðarljósunum í Reykjavík. Þannig koma dagar þar sem maður lendir á rauðu ljósi alla Miklubrautina. Alveg sama hvernig maður passar sig að aka á löglegum hraða og fylgja umferð eftir bestu getu.“

Þetta segir fjölmiðlamaðurinn Logi Bergmann Eiðsson í pistli sínum í sunnudagsblaði Morgunblaðsins um helgina.

„Það er náttúrlega einstaklega pirrandi því auðvitað gerist þetta helst þegar maður er að flýta sér og er orðinn of seinn á einhvern mikilvægan fund eða jafnvel, sem er vissulega enn mikilvægara, í golf. Það er heldur ekki gaman að þurfa alltaf að vera að stoppa og taka af stað aftur. Hlutir eru betri í flæði.“

Í pistli sínum skrifaði Logi um lögbundna frídaga sem lenda á helgum og bendir á að á þessu ári fái landsmenn einungis níu frídaga í stað tólf árið 2019. Rétt eins og umferðin gengur betur þegar hún er í samfelldu flæði telur Logi að lífið almennt myndi ganga betur fyrir sig ef frídagar og svo vinnudagar kæmu í einni beit ef svo má segja.

„Í gær var föstudagur en samt í raun líka mánudagur. Það var síðasti dagur fyrir helgi en líka fyrsti dagur eftir frí. Dagurinn á undan, uppstigningardagur, var í raun fimmtudagur en líka laugardagur (fyrri frídagur) og sunnudagur (seinni frídagur) og það þarf þá varla að taka það fram að miðvikudagurinn var líka föstudagur. Svona þannig. Það eru þessir frídagar í miðri viku sem eru í raun ekki neitt,“ segir Logi sem segir vissulega gott að fá frí. Hann veltir þó fyrir sér hvort ekki sé hægt að gera þetta að einhverri samfellu þannig að við séum ekki alltaf að stoppa og taka af stað aftur.

„Til að gera þessa viku enn undarlegri þá var frí á mánudaginn í skólum. Þá var starfsdagur í öllum grunnskólum Reykjavíkur og í gær var starfsdagur hjá sumum dagmæðrum. Þetta getur varla verið óskastaða fyrir fólk sem á kannski tvö börn, eins og sex ára. Væri ekki sniðugra að hreinlega færa þessa fimmtudagsfrídaga okkar og óreglulegu hátíðisdaga upp að helgi og búa þá eitthvað til úr þessu? Gefa fólki tækifæri á að eiga langa helgi og jafnvel gera þá eitthvað úr henni. Það er gert í sumum löndum, til dæmis Bretlandi. Þar heitir þetta því frumlega nafni Bank Holiday.“

Logi segir að kerfið sem nú er við lýði hér á landi þýði að við töpum einnig frídögum.

„Einföld stærðfræði segir okkur að tveir af hverjum sjö frídögum verkalýðsins koma upp um helgi. Það sama á við um þjóðhátíðardaginn okkar 17. júní. Á þessu ári fáum við til dæmis bara níu frídaga í stað 12 árið 2019. Á næsta ári verða nýársdagur, 1. maí, aðfanga-, jóla- og gamlársdagur allir um helgi. Fimm tapaðir dagar! Væri ekki sniðugra að hafa þessa daga bara almennt mánudaga?“

Logi segir að öll séum við trúlega sammála því að mánudagar séu frekar óspennandi. Kveðst Logi ekki getað ímyndað sér annað en að þeir sem reka fyrirtæki myndu styðja þessa hugmynd.

„Það er betra að hafa fólk á fullu og fá svo góða helgi en að missa það í eins dags frí og fá það svo í vinnu í einn dag. Mér skilst að verkalýðshreyfingin hafi ekki tekið vel í þá hugmynd að færa 1. maí. Sem mér finnst merkilegt í ljósi þess að verkalýðurinn hefði líklega verið mjög til í þetta. En ég er nokkuð viss um að Jón Sigurðsson og feðgarnir á himnum myndu ekkert vera að æsa sig yfir því þótt við reyndum að gera þessi frí aðeins notalegri. Lífið er nefnilega svo miklu betra í flæði.“