Logi Bergmann: „Við þekkjum öll þetta fólk“

„Við þekkjum öll þetta fólk. Þau eru vinir okkar, fjöl­skylda eða vinnu­fé­lagar. Oft skemmti­legasta fólkið, skyn­samt og mikil gleði sem fylgir því. Af og til kannski smá vesen á því og stundum gerir það eitt­hvað sem okkur finnst pínu bjána­legt en gera það ekki allir?,“ segir fjöl­miðla­maðurinn Logi Berg­mann Eiðs­son í viku­legum pistli sínum í Morgun­blaðinu.

Logi skrifar þar um SÁÁ en í gær­kvöldi fór fram söfnunar­þáttur á RÚV þar sem yfir 42 milljónir króna söfnuðust. Logi bendir á að öll þekkjum við ein­stak­linga sem ef til vill eiga í vand­ræðum þegar á­fengi er annars vegar.

„Smám saman tökum við eftir því að þetta gerist kannski full oft. Við sýnum því þolin­mæði, því það er það sem maður gerir við vini sína. Smám saman verður til ein­hvers konar mynstur sem segir okkur að þegar liðið er á kvöldið sé kannski mesta skyn­semin að færa sig að­eins frá þeim. Það er eins og það breytist í aðra mann­eskju,“ segir hann og bætir við að við séum jafn­vel hætt að kippa okkur upp við sögur sem enduðu á versta veg. Það verði þó aug­ljóst að hér sé vanda­mál á ferð.

„Veikinda­dögum fjölgar. Upp rennur sú stund að við gerum okkur grein fyrir því að þetta á­stand getur ekki talist eðli­legt og við­komandi sé hrein­lega veikur. Það nær jafn­vel svo langt að allir sjá það nema sjúk­lingurinn sjálfur. Hann er alkó­hól­isti.“

Logi tekur fram að hann hafi ekkert vit á alkó­hól­isma þó hann þekki mörg dæmi.

„En ég er mjög á­huga­samur og vinir mínir sem hafa hætt að drekka hafa sam­visku­sam­lega svarað spurningum mínum, sem sumar eru senni­lega frekar bjána­legar. Vinur minn, sem er mér sér­lega kær, hefur sagt mér frá hverju skrefi í þessu ferli - frá full­komnu von­leysi til bata. Um leið hefur mér fundist ein­stak­lega merki­legt að fylgjast með því hvernig hann hefur nýtt þetta ferli til að finna og rækta sínar bestu hliðar.“

Logi segist vera nokkuð viss um að hann – og reyndar fleiri vinir hans – væru ekki hér ef ekki væri fyrir SÁÁ. „Sam­tök sem eiga sér merki­lega sögu. Stofnuð af fylli­byttum fyrir rúmum 40 árum. Á tímum þegar það þótti aumingja­skapur að hafa ekki stjórn á drykkju sinni eða ná í það minnsta að fela hana nógu vel til að komast í gegnum daginn.“

Logi segir að margt hafi breyst á þessum árum þó alkó­hól­isminn sé ekki að fara neitt. Ekki frekar en með­virknin sem fylgir sjúk­dómnum og litar líf fjöl­skyldna um allt land og allan heim.

„Það er enn til fólk sem lítur þannig á að svo fremi sem það geti stundað vinnu, þá sé allt í lagi og þetta komi engum við. Kannski breytist það ein­hvern tímann.“

Logi segist hafa gefið í söfnun SÁÁ með glöðu geði og bendir hann á að það sé enn hægt.

„Ég geri það fyrir vini mína sem hafa náð bata og líka þá sem náðu honum aldrei. Kannski sér­stak­lega þá. Og svo er líka sjálf­sagt að velta því bara fyrir sér hver staðan væri ef við værum í sömu sporum og við vorum fyrir rúm­lega 40 árum. Það er ekki spennandi til­hugsun.“