„Það að hafna samstarfi við Sjálfstæðisflokkinn og Miðflokkinn eftir kosningar er ekki af tilefnislausu,“ segir Logi Einarsson, formaður Samfylkingarinnar, í aðsendri grein í Fréttablaðinu í dag.
Nú þegar fjórir eru mánuðir eru til kosninga eru flokkarnir farnir að kynna sín stefnumál og við hverju kjósendur geta búist af þeim á næsta kjörtímabili. Í grein sinni bendir Logi á að Samfylkingin hafi verið heiðarleg í afstöðu sinni til mögulegrar setu í ríkisstjórn og gert kjósendum það ljóst hvað mun tákna að kjósa hana.
„Við teljum nauðsynlegt að mynda græna félagshyggjustjórn, frá miðju til vinstri. Við teljum líka að við séum það afl sem geti leitt saman þessa flokka, eins og dæmin sanna víða um land í sveitarstjórnum,“ segir Logi meðal annars og segir að Samfylkingin sé sannfærð um að stefna jafnaðarmanna verði að ráða för við að takast á verkefnin framundan og uppstokkun „úreltra kerfa“ eins og hann orðar það.
„Það krefst samhentrar og framsýnnar ríkisstjórnar sem er reiðubúin til að ráðast gegn ríkjandi ójöfnuði og er jafnframt nægilega djörf og skapandi til að ganga keik til móts við spennandi en flókna framtíð; með hag allra að leiðarljósi. Þetta óttast sérhagsmunaöflin skiljanlega,“ segir Logi sem nefnir nokkur atriði úr þjóðfélagsumræðunni undanfarnar vikur.
„Við höfum séð að undanförnu hvernig sterkir hagsmunahópar og einstök fyrirtæki hafa grímulaust beitt einstaklega óvönduðum meðölum m.a. í fjölmiðlum og á samfélagsmiðlum. Þá hafa auðugir einstaklingar jafnvel keypt dýru verði óskammfeilnar útvarpsauglýsingar gegn Samfylkingunni, með rangfærslum og árásum,“ segir Logi og vísar þarna í skæruliðadeild Samherja og auglýsingar Bolla Kristinssonar gegn Degi B. Eggertssyni og Samfylkingunni.
„Þetta sýnir þá ógn sem sérshagsmunaöflin telja sér stafa frá Samfylkingunni. Þessir menn munu ekki linna látum í þessari baráttu, enda er þeim ljóst að að gott gengi Samfylkingarinnar er tryggasta leiðin til að koma í veg fyrir að hörðustu íhaldsöflin hafi stöðugt tögl og hagldir við stjórn landsins og stýri áfram í þágu sérhagsmuna.“