Logi Pedro með mikilvæga áminningu vegna hræðilegrar flökkusögu

„Flökkusagan sem gekk um er hræðileg. En þetta lúkkar nákvæmlega eins og falsfréttir sem ganga um á facebook síðum þjóðernissinna víðsvegar um Evrópu.“

Þetta segir tónlistarmaðurinn Logi Pedro Stefánsson um flökkusögu um hræðilega hópnauðgun sem var sögð hafa átt sér stað á dögunum. Fréttablaðið greindi frá málinu en samkvæmt sögunni, sem gekk meðal annars á Instagram og Twitter, var ung íslensk kona numin á brott af hópi erlendra manna í miðborg Reykjavíkur og henni nauðgað úti á Gróttu á Seltjarnarnesi.

Í sögunni var fullyrt að mennirnir væru frá ákveðnu Austur-Evrópulandi. Stúlkan hafi svo komist undan með því að hoppa út úr bíl mannanna á ferð. Ævar Pálmi Pálmason, yfirmaður kynferðisbrotadeildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, sagði við Fréttablaðið að hann kannaðist við söguna en ekkert slíkt mál væri til rannsóknar.

Málið vekur ýmsar spurningar um falsfréttir og umræðuna almennt á samfélagsmiðlum. Logi, sem hefur látið töluvert til sín taka í umræðum um rasisma og kynþáttahyggju, segir í færslu sinni að ekki megi gleyma einni stærstu ógn okkar tíma sem eru kynþáttahyggja, þjóðernissinnar og falsfréttir þeirra.