Logi og Kolbeinn svara ákalli Bubba og hjóla í Samherja: „Manni verður einfaldlega illt að fylgjast með þessu“

Logi Einarsson, formaður Samfylkingarinnar, hefur svarað ákalli Bubba Morthens sem sagði um helgina að þögn þingmanna vegna Samherjamálsins væri ærandi. Það gerir Kolbeinn Óttarsson Proppé, þingmaður VG, einnig á Facebook-síðu sinni.

„Við erum að tala um milljarða fyrir­tæki sem er risi meðal risa á landi hér. Það sem slær mann sér­stak­lega er þögn þing­manna þjóðarinnar sem klár­lega heyra og sjá það sem er að gerast. Er það þetta sem við al­menningur viljum? Að það sé ráðist á frétta­fólk sem er að vinna sína vinnu? Það eru gerðir sjón­varps­þættir til þess að taka Helga niður og settir á netið þannig að þeir blasa við öllum, börnum jafnt sem full­orðnum. Efnið er ís­kaldur á­róður þar sem hamast er á Helga og ekkert til sparað. Mánuðum saman,“ sagði Bubbi á Facebook-síðu sinni og vísaði til gegndarlausra árása Samherja á fréttamanninn Helga Seljan.

Smásárleg hegðun

Í pistli á Facebook segir Kolbeinn að forsvarsmenn Samherja nýti nú auð sinn í endalausar árásir gegn fréttamanni sem þeim finnst hafa verið sér óþægur ljár í þúfu. „Og í leiðinni að allri fréttastofu RÚV. Auð sem þeir hafa öðlast við að nýta sameiginlega auðlind þjóðarinnar. Og sækja að einstaka starfsmönnum Seðlabankans. Þetta er ljótt. Smásálarlegt. Þráhyggjan er slík að manni verður einfaldlega illt að fylgjast með þessu.“

Segist Kolbeinn velta því oft og tíðum fyrir sér hvort forsvarsmenn Samherja séu algjörlega úr takti við samfélagið. „Mér fannst hegðun sumra þeirra á nefndarsviði Alþingis, þar sem þeir veittust að þáverandi seðlabankastjóra, benda til þess. Gaf ákveðna tilætlunarsemi til kynna, elítuhugsun um að vera yfir þetta allt hafinn og reglur samfélagsins giltu ekki um þá. Þegar ég steig á milli voru það ósjálfráð viðbrögð við því að ungur og kraftalegur maður veittist að eldri manni. En þetta var svo miklu meira en það; það hvernig þú bregst við fólki sem þér finnst vera þér mótdrægt segir nefnilega allt um þig sem manneskju. Og viðbrögðin þarna voru að það ætti bara að öskra þetta óþægilega í burtu.“

Hann segir að forsvarsmenn Samherja séu enn við sama heygarðshornið. Þeir hiki ekki við að nýta forréttindastöðu sína til að reyna að öskra það óþægilega í burtu. „Reynið frekar að líta í eigin barm og þroskast af þessari lífsreynslu. Ég vona að Helgi Seljan, fólkið á fréttastofu RÚV og þeir starfsmenn Seðlabankans sem undir eru hafi það eins gott og hægt er undir þessum ömurlegu kringumstæðum. Hugur minn er alltént hjá þeim.“

Telja sig lúta öðrum lögmálum

Logi Einarsson tekur í svipaðan streng en er þó ekki jafn harðorður og Kolbeinn. Hann rifjar upp að þegar hann var að alast upp á Akureyri fyrir nokkrum áratugum hafi einstaka fjölskyldur í bænum verið efnameiri en aðrar. Það hafi meðal annars birst í einbýlishúsi, Volvo og lítilli aukabifreið.

„Jú svo fóru þessar fjölskyldur stundum í utanlandsferðir sem var frekar sjaldgæft þá.

Að öðru leyti tók maður lítið eftir þessu. Börn þessa efnafólks gengu með manni í skóla og strákarnir spiluðu með manni fótbolta. Hugsanlega hafa þau átt Millet úlpur eða flottari takkaskó en ég tók þá að minnsta kosti ekki eftir því.“

Logi bendir á að síðan þá hafi mikið vatn runnið til sjávar og mikill auður safnast á enn færri hendur, örfáir einstaklingar séu ríkari en hægt er að átta sig á.

„Ein ástæðan er aðgangur þeirra að sameiginlegum auðlindum þjóðarinnar. Hluti þessa auðs hefur síðan leitað í aðrar greinar og sömu aðilar hreiðrað um sig í orkugeiranum, trygginga- og bankastarfsemi, matvörukeðjum, flutningastarfsemi, húsnæðismarkaði og jafnvel fjölmiðlum.“

Logi segir að þetta eitt og sér sé hættuleg þróun sem endar að lokum með því að lýðræðið lætur í minni pokann fyrir auðræðinu. Það þurfi að taka það alvarlegar þegar seðlabankastjóri segi að Íslandi sé að miklu leyti stjórnað af hagsmunahópum.

„Við höfum líka orðið vör við það að sumir þessir sturtríku manna haga sér eins og um þá eigi að gilda önnur lög og aðrir mannasiðir. Viðbrögð stjórnenda Samherja í́ kjölfar Seðlabankamálsins og Namibíuskjalanna gefa t.d. tilefni til að ætla að þeir telji sig lúta öðrum lögmálum og annað fólk.“

Logi segir að menn séu vissulega saklausir uns sekt er sönnuð en bendir jafnframt á að ótal margir hafi þurft að sæta rannsókn og haft stöðu sakborninga án þess að hafa efni á að ráðast í allsherjar áróðursstríð – þeim detti það sjálfsagt ekki í hug.

„Og munum að þær ásakanir sem nú eru til rannsóknar eru með þeim alvarlegustu sem sést hafa í viðskiptum. Þær snúast nefnilega ekki bara um peningaþvætti, mútur og skattasniðgöngu, heldur varða þær ljót samskipti við fátækt ríki, í álfu sem Vesturlönd hafa traðkað á í meira en 100 ár - og á verulega undir högg að sækja, ekki síst af þeim sökum.

Árásir Samherja á einstaka embættis- og blaðamenn taka svo hlutina alveg á́ nýtt og áður óþekkt stig og grafa undan því́ að fólk sem sinnir eftirliti og aðhaldi geti sinnt störfum sínum óhrætt.“