Logi hættur á Twitter: „This account doesn‘t exist“

Fjölmiðlamaðurinn Logi Bergmann Eiðsson er ekki lengur á Twitter ef marka má upplýsingar sem koma þegar leitað er að Twitter-síðu hans.

Eins og fram kom í gær er Logi einn þeirra sem nafngreindir voru í máli Vítalíu Lazarevu sem steig fram í hlaðvarpsþættinum Eigin konur á dögunum.

Vítalía lýsti ömurlegri reynslu sinni í sumarbústaðarferð og endaði gærdagurinn á því að allir fimm sem komu að málinu stigu til hliðar. Hinir sem nafngreindir voru í tengslum við málið voru Hreggviður Jónsson, Þórður Már Jóhannesson, Arnar Grant og Ari Edwald.

Logi hefur í gegnum tíðina verið nokkuð virkur á Twitter og átti hann töluverðan fjölda fylgjenda. Einstaklingar sem hafa látið sig baráttuna gegn hvers konar kynferðisofbeldi varða eru fyrirferðarmiklir á Twitter og hafa þeir óhikað merkt Twitter-aðgang Loga í færslum sínum.

Þegar Twitter-aðgangi Loga er slegið upp blasa hins vegar við eftirfarandi skilaboð: „This account doesn’t exist. Try searching for another.“

Logi sendi frá sér yfirlýsingu í gærkvöldi sem vakti hörð viðbrögð en í henni sagðist hann vera saklaus af öllum ásökunum sem bornar hafa verið á hann síðustu daga. Hann sagðist þó sekur um að hafa farið yfir mörk í einkalífi fólks með því að hafa farið inn í rangt herbergi.