„Þetta er skammarlegt og þetta verður að breytast. Við eigum að sýna mannúð og alþjóðlega samstöðu,“ segir Logi Einarsson, formaður Samfylkingarinnar, í færslu á Facebook-síðu sinni.
Logi skrifar þar meðal annars um mál egypskrar fjölskyldu sem dvalið hefur hér á landi í rúm tvö ár. Fjölskyldunni hefur verið neitað um vernd og stendur til að senda hana úr landi á næstu dögum. Yngsta barnið í fjölskyldunni kom til Íslands þegar það var sex mánaða, en elstu börnin ganga í Háaleitisskóla í Reykjavík og hafa þau aðlagast íslensku samfélagi vel.
Logi bendir á að fjögur þúsund börn á flótta séu nú heimilislaus eftir að flóttamannabúðir í Moria í Grikklandi brunnu til kaldra kola.
„Allt kapp er nú lagt á að koma þeim í öruggt skjól, ekki einungis til að tryggja þeim þak yfir höfuðið, heldur af því að veruleg hætta er á skjótri útbreiðslu kórónaveirunnar við núverandi aðstæður,“ segir hann og bætir við að stjórnvöld fjöldamargra landa hafi rétt fram hjálparhönd og boðist til að taka á móti hluta af þessum börnum og barnafjölskyldum sem eru í sárri neyð.
„En ekki ríkisstjórn Íslands. Hún skilar auðu. Í stað þess að ríkisstjórnin hafi forgöngu um að sækja barnafjölskyldur í neyð og hjálpa þeim að setjast að á Íslandi þurfum við enn og aftur að lesa fréttir um brottvísun barnafjölskyldu úr landi, nú síðast af egypskri fjölskyldu sem dvalið hefur á Íslandi í meira en tvö ár,“ segir Logi sem virðist vera búinn að fá nóg.
„Þetta er skammarlegt og þetta verður að breytast. Við eigum að sýna mannúð og alþjóðlega samstöðu. Samkennd, samhjálp og umburðarlyndi eru þau gildi sem mikill meirihluti Íslendinga vill berjast fyrir og vera þekkt fyrir, heima og erlendis.“