Logi blæs á sögu­sagnir um fram­boð: „Það er ein­hver mis­skilningur“

Tón­listar­maðurinn Logi Pedro segist hafa fengið margar fyrir­spurnir í vikunni um hvort hann ætli að bjóða sig fram í próf­kjöri Sam­fylkingarinnar. Logi segir það af og frá.

„Ég er búinn að fá margar fyrir­spurnir varðandi próf­kjör hjá sam­fylkingunni í vikunni. það er ein­hver mis­skilningur um það að ég liggi undir feldi. ég er ekki pólítíkus, það er ekki fyrir mig, not my tempo,“ skrifar Logi á Twitter. „Er bara ung­lingur að þykjast vera lista­maður,“ bætir hann við

Sam­fylkingar­fé­lagið í Reykja­vík sam­þykkti í desember að fyrir borgar­stjórnar­kosningar í Reykja­vík verði valið á lista með bindandi flokksvali í sex efstu sætin á lista flokksins.