Logi Bergmann var handtekinn og kærður: „Ég kærði hann á móti fyrir að vera asni“

„Það er mjög áhugavert að velta því fyrir sér hvaða fréttir við hefðum fengið af stríðsátökum síðustu ára ef fjölmiðlamenn hefðu ekki fengið að fara að víglínunni,“ segir fjölmiðlamaðurinn Logi Bergmann Eiðsson í athyglisverðum pistli sem birtist í sunnudagsblaði Morgunblaðsins um helgina.

Í pistli sínum fjallar Logi um hlutverk fjölmiðla og rifjar upp þegar Sigríði Hagalín Björnsdóttur, fréttamanni Ríkisútvarpsins, var meinað að fara inn fyrir lokun Keilisafleggjarans vegna yfirvofandi eldgoss á dögunum. Vörður tilkynnti henni að almenningur mætti ekki fara inn á svæðið. Hún fékk sama svar þegar hún spurði hvort það sama ætti við um fjölmiðla.

„Ég er ekki að áfellast sendiboðann, sem hefur væntanlega fengið ströng fyrirmæli um að halda almenningi úti, en málið er að þetta er ekki í fyrsta sinn sem svona heyrist og það er alltaf jafn pirrandi fyrir okkur sem vinnum við fjölmiðla. Það er nefnilega þannig, án þess að þykjast vera eitthvað merkilegur, að fjölmiðlar eru alls ekki almenningur. En það var eiginlega það sem vörðurinn ákvað að bæta við sem mér finnst skipta töluverðu máli: Enginn sem ekki á erindi.“

Logi bendir á að fjölmiðlar eigi erindi og þeirra hlutverk að færa fólki eins ómengaðar upplýsingar og möguleiki er á.

„Til þess þurfa þeir að hafa aðgang og það á jafnt við um atburði sem upplýsingar. Til þess að geta gefið áhorfendum, hlustendum og lesendum mynd af því sem er að gerast þurfa þeir að hafa geta nálgast fréttaefnið eins milliliðalaust og hægt er. Þegar kemur að sjónvarpi og ljósmyndara er það sérlega mikilvægt. Ekki bara fyrir þá sem hlamma sér í sófann sama kvöld, heldur líka fyrir komandi kynslóðir. Það er nefnilega ekki eins og fjölmiðlar séu bara að gera þetta að gamni sínu að fara inn á svæði sem teljast kannski ekki alveg örugg,“ segir hann og bætir við að fróðlegt sé að velta fyrir sér hvaða mynd almenningur hefði fengið af Bosníustríðinu eða Víetnam stríðinu ef fjölmiðlamenn hefðu ekki verið á svæðinu.

Logi rifjar svo upp að hann sé í hópi þeirra blaðamanna sem hefur verið handtekinn á vettvangi. Þetta gerðist í byrjun árs 1999 þegar Logi var fréttamaður Sjónvarps og var að flytja fréttir af miklum eldsvoða í verksmiðju Hörpu.

„Þar var ég á ferð með slökkviliðinu og hafði fengið heimild til að fara inn fyrir lokun. Það fannst áhugasömum lögreglumanni hin versta hugmynd, handtók mig á staðnum og flutti mig niður á lögreglustöð. Ég var frekar pirraður. Gott ef hann kærði mig svo ekki fyrir brot gegn valdstjórninni, eins og það heitir í lögunum og ég kærði hann á móti fyrir að vera asni. Málið var svo fellt niður og lögreglumaðurinn lét af störfum skömmu síðar.“

Logi segir að niðurstaða margra sáttafunda hafi verið sú að fjölmiðlar ættu rétt umfram almenning þegar kæmi að atburðum sem þessum.

„Svo gerist eitthvað nýtt og þá vilja allar þessar reglur gleymast í spennunni og hinir svokölluðu viðbragðsaðilar (sem er hræðilega ljótt og stofnanalegt orð) gleyma fjölmiðlunum aftur. Skilja einn eftir við afleggjarann til að passa að fjölmiðlar séu nú ekki að fara sér að voða. Stundum heyrast líka þau rök að það sé ekki gott að segja hverjir séu raunverulega fjölmiðlamenn. Þá má benda á að það eru gefin út sérstök skilríki fyrir blaðamenn og flestir bera einhver einkenni fjölmiðils síns. Og ég held ég geti lofað ykkur því að ef þið mætið Sigríði Hagalín aftur eða Kristjáni Má í gula vestinu, þá eru þau ekki komin þangað til að búa til gott instastory.“