Logi Berg­mann segir aug­ljóst hver tekur brekku­sönginn

Fjöl­miðla­maðurinn Logi Berg­mann segir aug­ljóst hver muni taka brekku­sönginn á Þjóð­há­tíð í Eyjum í ár eftir að Þjóð­há­tíðar­nefnd ákvað að slíta ára­löngu sam­bandi sínu við Ingó Veður­guð. Ingó Veðurguð mun því ekki sjá um brekkusönginn í ár en Þjóðhátíðarnefnd hefur ekki ákveðið hver mun taka við keflinu af Ingó.

Logi leggur til að enginn annar en Þór­ólfur Guðna­son, sótt­varna­læknir, verði fyrir valinu og skemmti lands­mönnum í dalnum í sumar.

„Þór­ólfur Guðna­son tekur þennan brekku­söng. Málið er út­rætt,“ skrifar Logi á twitter.