Logi Bergmann kominn með nýtt starf

Fjölmiðlamaðurinn Logi Bergmann Eiðsson er kominn með nýtt starf, réttu ári eftir að hann var sakaður, ásamt fleirum, um brot gegn Vítalíu Lazareva.

Heimildin greinir frá því í dag að Logi hafi verið ráðinn til starfa hjá Samtökum fyrirtækja í sjávarútvegi þar sem hann mun sinna tilfallandi verkefnum, eins og það er orðað. Þá mun Logi vinna að undirbúningi ársfundar samtakanna.

Laufey Rún Ketilsdóttir var ráðin upplýsingafulltrúi samtakanna fyrir skemmstu en mun ekki hefja störf fyrr en 1. júní næstkomandi þegar hún lýkur fæðingarorlofi. Hefur undirbúningur ársfundarins verið á höndum upplýsingafulltrúa, samkvæmt frétt Heimildarinnar. Vantaði samtökunum aðstoð sem varð til þess að Logi var ráðinn.