Logi Berg­mann kastar kveðju á Eddu: „Hélt hrein­lega að hún myndi aldrei hætta“

Logi Berg­mann sem vann árum saman með Eddu Andrés­dóttur sem frétta­þulur á Stöð 2 kastar kveðju á Eddu í til­efni þess að Edda las sinn siðasta frétta­tíma í gær eftir um 50 ár á Vísi.

„Mér finnst þetta merki­­legur dagur. Ég hélt hrein­­lega að Edda myndi aldrei hætta að lesa fréttir! En hún ætlar sem­­sagt að hætta í kvöld. Við náðum tólf skemmti­­legum árum saman á Stöð 2. Þar gekk á ýmsu en alltaf var Edda eins og kletturinn í hafinu,“ skrifar Logi á Face­book.

„Hún er ekki bara frá­bær lesari heldur hefur hún alltaf haft gaman að því að gera það sem hún gerir og veit upp á hár hvernig á að gera það. Ég sakna Eddu sem vinnu­­fé­laga og ég á líka eftir að sakna hennar af skjánum. Myndirnar eru frá tíma okkar saman á stöðinni (það er mögu­­lega búið að eiga við eina þeirra) og ég vona að við eigum eftir að fá fleiri myndir af Eddu á skjánum. Þar á hún heima,“ skrifar Logi.