Logi Bergmann Eiðsson, fjölmiðlamaður og pistlahöfundur í Morgunblaðinu, segir að hans upplifun sé sú að hann sé ekki neinn sérstakur félagsskapur eftir að hafa verið í vikulangri sóttkví.
Logi skrifar bráðskemmtilegan pistil um málið í helgarblaði Morgunblaðsins í dag. Hann segist vera einn af þeim sem aldrei hafa haft miklar áhyggjur af covid. „Þegar aðgerðirnar byrjuðu var ég dálítið spenntur fyrir þessu hugtaki; sóttkví. Loka sig af í viku eða jafnvel lengur og fá að vera í friði að dunda sér. Lesa nokkrar bækur, horfa á þætti sem ég átti eftir að klára og skrifa kannski eitthvað gáfulegt. Svo myndi ég örugglega mála nokkur herbergi, halda mér í formi og læra eitthvað nýtt. Það gerðist ekki,“ segir Logi sem bætir við að eftir að hafa lokið þessari vikur hafi hann komist að því að sóttkví er fullkomlega ofmetið fyrirbæri.
„Eftir þessa reynslu finnst mér ég ekki vera neitt sérstakur félagsskapur, sem eru vissulega vonbrigði fyrir mann sem heldur að hann sé hvers manns hugljúfi. Ætli ég sé ekki meiri hópsál en mig hefur grunað. Ég hef líka komist að því að sennilega er ég með frestunaráráttu,“ segir Logi og nefnir nokkur dæmi máli sínu til stuðnings.
Hann gerði ýmislegt til að drepa tímann meðan á sóttkvínni stóð; raðað í skúffur og skápa og fundið ýmislegt sem hann vissi ekki að væri til.
„Ég lagaði til í bílskúrnum og flokkaði golffötin mín eftir veðri. Ég er líka búinn að þrífa kylfurnar mínar og skoða á netinu allar golfferðir sem farnar verða frá Íslandi næstu mánuðina. Þetta snýst vissulega um að drepa tímann og ég hef drepið. Ég er búinn með tvo Call of Duty-leiki þar sem ég hef vissulega þurft að drepa allt frá nasistum til hryðjuverkamanna í fjarlægum Sovétlýðveldum. Ég get ekki neitað því að drjúgur tími í þessari viku fór í að verja vestrænt lýðræði. Ekkert að þakka. Ég sorteraði staka sokka heimilisins og komst að þeirri niðurstöðu að líklega hafa sumir þeirra verið stakir svo lengi að þeim verður vart hugað líf. Svo hef ég talað við vin minn, þann sem ber ábyrgð á þessari sóttkví, í tvo til þrjá tíma á dag.“
Logi, sem er harður stuðningsmaður Manchester United, segist hafa fyrirgefið vini sínum fyrir að hafa haft af honum ferð til Manchester – enda vita allir hvernig leikur United og Liverpool fór um liðna helgi. Heimaliðið tapaði 5-0 og sá aldrei til sólar.
„Því er svo við þetta að bæta að þessa sóttkví kláraði ég í heimafötunum. Reyndar sömu fötunum næstum alla vikuna. Það mun líklega ekki gerast næst því ástkær eiginkona mín hefur lýst því yfir að hún muni kveikja í heimapeysunni minni. Í næstu sóttkví ætla ég að klæða mig á hverjum degi og vera duglegur. Ég lofa.“