Logi Bergmann ætlar í frí

Logi Bergmann tjáði sig rétt í þessu í Síðdegisþættinum á K100 og sagðist ætla í frí.

„Ég hef verið betri en við ætlum að gera hérna útvarpsþátt. Ég hendi einum þætti í loftið núna og svo er ég kannski í smá frí og við sjáum bara til hvað gerist.“

Sjá einnig: Arnar Grant, Hreggviður og Ari hverfa á braut eftir ásakanir Vítalíu

Nafn Loga hefur komið upp í tengslum við mál hinnar 24 ára gömlu Vitaliu Lazarevu í hlaðvarpi Eddu Falak, Eigin konur, fyrr í vikunni þar sem hún lýsti alvarlegu kynferðislegu ofbeldi sem hún sagðist hafa verið beitt af kærastanum sínum og þremur vinum hans í bústaðarferð. Sömuleiðis lýsti hún öðru aðskildu máli í golfferð.

Fréttablaðið greindi fyrst frá.