„Þetta er hneyksli,“ segir Guðmundur Andri Thorsson, þingmaður Samfylkingarinnar, um þá frétt Kjarnans að efnahags- og fjármálaráðuneytið hefði lagst gegn því að Þorvaldur Gylfason, prófessor í hagfræði, yrði ráðinn ritstjóri fræðatímaritsins Nordic Economic Policy Review.
Kjarninn greinir frá því í morgun að starfsmaður ráðuneytisins hefði komið þeim skilaboðum til fjármálaráðuneyta á Norðurlöndunum og til Norrænu ráðherranefndarinnar að ráðuneytið gæti ekki stutt það að Þorvaldur yrði ráðinn. Var ástæðan sögð sú að hann væri of pólitískt virkur og enn formaður stjórnmálaafls.
Þetta er rangt því Þorvaldur hefur ekki gegnt trúnaðarstörfum fyrir stjórnmálaflokk síðan 2013, en það ár leiddi hann Lýðræðisvaktina í Alþingiskosningunum. Flokkurinn kom ekki manni að í kosningunum. Þorvaldur segir við Kjarninn að ljóst er að rangfærslurnar komu í veg fyrir að hann fengi ritstjórastarfið en ráðning hans var afturkölluð í nóvember síðastliðnum.
Frétt Kjarnans hefur vakið talsverða athygli og vandar Helga Vala Helgadóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, Sjálfstæðisflokknum ekki kveðjurnar.
„Það er nákvæmlega svona sem Sjálfstæðisflokkurinn starfar. Ef þú ert ekki með þeim í liði þá ertu of pólitískur,“ segir hún.
Hún segir að þetta geri það að verkum að meginþorri lögmanna, hagfræðinga og annarra sérfræðinga um ýmislegt er varðað getur stjórnarhætti veigra sér við að tjá sig.
„Það er líka þess vegna sem fjölmiðlafólk margt hvert hikar frekar en að fjalla um. Það er þess vegna sem þeir sem tjá sig fá spurninguna “hvernig þorirðu að taka þennan slag?” Það er vegna þess að Sjálfstæðisflokkurinn hikar ekki við að reyna að hafa störf af heiðvirðu fólki eða e.a. koma í veg fyrir slíkar stöðuveitingar. Sjálfstæðisflokkurinn er í ríkisstjórn í boði VG. Við skulum muna það.“
Jón Þór Ólafsson, þingmaður Pírata, veltir fyrir sér hvort um sé að ræða misbeitingu á valdi ráðuneytisins. Hann merkir kollega sína í Pírötum, þingmennina Smára McCarthy og Björn Leví Gunnarsson, í þræði á Pírataspjallinu á Facebook og spyr: „Er ekki hægt að láta þingnefnd annar hvors ykkar kalla ráðuneytið á teppið og rannsaka málið?“
Smári á sæti í efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis en Björn Leví á sæti í fjárlaganefnd.