Lóa Pind svarar fyrir sig af hörku: „Þú færð engan í lið með þér með þeirri að­ferð“

Lóa Pind Al­dísar­dóttir, stjórnandi þáttanna Kjöt­ætur óskast!, hefur svarað þeirri gagn­rýni sem sett er fram á þætti hennar í Face­book-hópnum Vegan Ís­land og fjallað var um á Hring­braut í gær­kvöldi.

Loka­þátturinn var sýndur á mánu­dags­kvöld en í þáttunum var fylgst með fjórum fjöl­skyldum sem prófa að gerast vegan í einn mánuð. Lóa Pind tók einnig þátt í til­rauninni en gafst upp að þessum fjórum vikum liðnum. Sagðist Lóa hafa saknað þess að geta ekki fengið hina hei­lögu þrenningu: Nauta­kjöt, rauð­vín og Coca Cola Light.

Sjá einnig: Þættir Lóu Pindar gera allt vit­laust: „Mér fannst þetta alveg glataðir þættir“

Nokkur gagn­rýni kom fram á þættina í um­ræddum Face­book-hópi í gær. Vala Árna­dóttir, fram­kvæmda­stýra Sam­taka græn­kera á Ís­landi, hóf um­ræðuna og sagði:

„Öööööö veit Lóa Pind ekki að Coke Light og flest rauð­vín eru vegan? Amk. Þau rauð­vín sem eru góð. Voða­­lega er þetta þunnur þrettándi.“

Frekari gagn­rýni kom fram á þættina, meðal annars frá Júlíu Sif Lilju­dóttur sem hefur gefið út bók fyrir græn­kera. Sagðist hún vera þeirrar skoðunar að þættirnir væru glataðir og ein­blíndu á hvað vegan­ismi væri glataður. Aðrar at­huga­semdir voru í svipuðum dúr.

Sjá einnig:Ævar vildi ekki taka þátt í vegan­þætti Lóu: „Myndi ekki þola 4 vikur af þriðja flokks næringu“

Vala gagn­rýndi Lóu meðal annars fyrir meint við­horf hennar til vegan­isma sem hún segir að hafi skinið í gegn í þáttunum. „En að lof­sama kjöt og gretta sig yfir vegan mat í hverjum einasta þætti er engin leið til að auka neyslu á græn­ker­a­fæði. Þú varst vís­vitandi að ýta undir for­dóma fyrir vegan lífs­stíl til að búa til raun­veru­leika­sjón­varp sem hneykslar, til hamingju þér tókst það.

Lóa Pind svaraði þessum gagn­rýnis­röddum og á­varpaði meðal annars Völu, fram­kvæmda­stjóra Sam­taka græn­kera.

„Mér er full­kunnugt um – enda gerði ég fimm þátta sjón­varpsseríu um það – að það er stað­reynd að kol­efnis­spor græn­keramatar er minna. En það er ofsa­trú þegar rör­sýn er farin að hindra fólk í að eiga eðli­leg skoðana­skipti. Þegar fólk plantar sér á háan hest og telur sig hafa höndlað sann­leikann sem leyfir því að drulla yfir hina trú­lausu. Þú færð engan í lið með þér með þeirri að­ferð. Varðandi fag­leg­heit. Það er lang­þekkt að­ferð þátta­stjórnanda í heimilda­þáttum að taka sjálfir þátt í eigin til­raunum – að setja sig í spor við­mælenda,“ sagði Lóa Pind og nefndi til dæmis Morgan Spur­lock sem gerði heimildar­myndina Super Size Me.

„Ég fór for­dóma­laus inn í þessa veg­ferð, vissi mæta­vel að kol­efnis­sporið væri lík­lega minna en hafði enga hug­mynd um hvernig færi með heilsu­fars­mælingarnar. Fékk þess vegna fjöl­breyttan hóp af fólki - sem á­kveðið þver­snið af þjóð­fé­laginu – til þess að fá sem heil­brigðasta niður­stöðu. Vegna þess – að ef stór hluti þjóðarinnar – á­kvæði að borða meira af vegan­mat, þá yrði það ekki undir hand­leiðslu sér­fræðinga. Það yrði við svipaðar að­stæður og gert var í þessari til­raun. Það er hins vegar orðið kýr­skýrt við að fylgjast með um­ræðunni hér að það er ekki í boði að fara for­dóma­laus inn í svona til­raun – það er einungis í boði að vera fyrir fram sann­færður og gera „til­raun“ sem gefur fyrir fram gefna niður­stöðu. En mér þætt vænt um, Vala Árna­dóttir, að við gætum rætt þetta eins og 2 siðaðar full­orðnar mann­eskjur að tala um á­lita­mál í nú­tíma­sam­fé­lagi. Án þess að þú setjir þig á háan hest – og án þess að níða mig niður.“

Sjá einnig: Lóa Pind með játningu: Þess vegna er hún ekki lengur vegan