Lóa Pind með játningu: Þess vegna er hún ekki lengur vegan

Lóa Pind Al­dísar­dóttir, sjón­varps­kona og leik­stjóri þáttanna Kjöt­ætur óskast! á Stöð 2, birti játningu á Face­book-síðu sinni í gær­kvöldi. Í gær var loka­þátturinn á dag­skrá en í þáttunum tóku fjórar fjöl­skyldur þátt í fjögurra vikna vegan­til­raun. Lóa Pind tók einnig þátt á­samt sinni fjöl­skyldu.

„JÁTNING: Ég er ekki lengur vegan. Fannst samt gaman - og erfitt - að neita mér um að borða flest það sem mér finnst best í heimi í 4 vikna vegan­til­raun í haust,“ segir Lóa Pind.

Hún segir erfiðast hvað það vantaði mikla gleði í matinn. „Vantaði þriðju víddina. Fannst eins og vélindað væri að þorna upp. Ég hef upp­lifað svona vélinda­þornun áður - þegar mig hefur vantað eitt­hvað af eftir­töldu í hina hei­lögu þrenningu: Nauta­kjöt + rauð­vín + kók light,“ segir Lóa Pind sem kveðst hafa reynt að út­skýra þennan skort fyrir vin­konu sinni, Ragn­heiði Ei­ríks­dóttir, en hún hafi rang­hvolft augunum.

„Sú sama og rang­hvolfdi augum fyrir 30 árum þegar ég kvaðst bara ekki hafa notað græn­metið í ís­skápnum af því það var svo langt síðan ég hafði verið með ham­borgara,“ segir Lóa í færslu sinni og bætir við að hún hafi svo upp­götvað í miðri til­raun hvað væri málið.

„Áttaði mig sem sé á því að ég þjáðist af Um­ami-skorti. Eftir það varð ég ögn hamingju­samari vegan­isti. Mæli með að fólk lesi sér til um Um­ami áður en það stígur skref í átt að græn­kera­til­veru.“

Lóa Pind segir að nú, fjórum mánuðum síðar, sé hún komin nokkur skref í þá átt. Hún viður­kennir að hafa verið frekar með­vitundar­laus neytandi.

„Borðað það sem mér finnst gott. En með sam­visku­bit yfir því að haga mér ekki eins og með­vitaður borgari á tímum yfir­vofandi ham­fara­hlýnunar. Gleymi því svo um leið og ég fer út í búð. Hef horft á fullt af dramatískum ham­fara­hlýnunar­þáttum og heimilda­myndum. Reyni að lesa fréttir um lofts­lags­vána en sóna iðu­lega út innan nokkurra sekúndna og ranka við mér þar sem ég er farin að gúgla kjóla­búðir eða skoða úti­vistar­fatnað á netinu.“

Lóa Pind kveðst vona að ein­hverjir hafi haldið út í meira en nokkrar sekúndur við að horfa á vegan­til­rauna­dýrin engjast og gleðjast í fjórar vikur í þáttunum.

„Takk elsku til­rauna­dýr. Þið voruð bestu, skemmti­legustu, já­kvæðustu og nei­kvæðustu og fyndnustu til­rauna­dýr sem ég hefði getað fengið í þessa vegan­veg­ferð. Ég vona að þið hlakkið öll mjög mikið til að sjá upp­lýsingar um ykkar innri kvið­fitu, kólesteról, vöðva­massa, fitu­bruna og annað krútt­legt á sjón­varps­skjám lands­manna í loka­þættinum í kvöld,“ sagði Lóa Pind í færslu sinni en loka­þátturinn var sem fyrr segir sýndur í gær­kvöldi.