Lóa Pind: Ekki væn­leg leið að hjarta kjöt­ætu að drulla yfir þorra þjóðarinnar

„Hef smá þörf eftir síðasta sólar­hring til að hrista af mér skítakleprana! Reyndar, ef ég hefði viljað sigla lygnan sjó í þessu lífi - þá hefði ég lík­lega ekki valið mér þann starfs­vett­vang að fjalla í sjón­varpi um t.d. sjálfs­víg, Hrunið, múslima á Ís­landi, inn­flytj­endur - og nú síðast kjöt­ætur í vegan­til­raun.“

Þetta segir Lóa Pind Al­dísar­dóttir, sjón­varps­konan geð­þekka, sem lenti í hálf­gerðum net­stormi í vikunni vegna þátta hennar, Kjöt­ætur óskast!. Í þáttunum var fylgst með fjórum fjöl­skyldum sem prófa að gerast vegan í einn mánuðum. Lóa Pind tók einnig þátt í til­rauninni en eins og Hring­braut greindi frá í vikunni féllu þættirnir mis­vel í kramið hjá vegan­istum.

Sjá einnig: Þættir Lóu Pindar gera allt vit­laust: „Mér fannst þetta alveg glataðir þættir“

Var Lóa Pind meðal annars gagn­rýnd fyrir að lof­sama kjöt og gretta sig yfir vegan­mat í hverjum þætti. Hún væri vís­vitandi að ýta undir for­dóma gegn þeim sem að­hyllast þennan göfuga lífs­stíl. Um­ræðurnar fóru að stóru leyti fram í Face­book-hópnum Vegan Ís­land en í gær­kvöldi skrifaði Lóa Pind eins­konar upp­gjör­spistil á eigin Face­book-síðu.

Í pistlinum segir hún það hafa verið „galið gaman“ að fylgjast með fjórum fjör­miklum fjöl­skyldum taka 28 daga á­skorun um að borða engar dýra­af­urðir. Til­raunin varð til þess að þeim tókst næstum öllum að snar­minnka kol­efnis­sporið af matar­æðinu.

Sjá einnig:Ævar vildi ekki taka þátt í vegan­þætti Lóu: „Myndi ekki þola 4 vikur af þriðja flokks næringu“

„En niður­stöður heilsu­fars­mælinga á þessum litla hóp bentu til að þetta matar­æði hentaði okkur mis­vel. Græn­ker­a­fæðið virtist henta 4 af 9 full­orðnum til­rauna­dýrum ljómandi vel en síður okkur hinum 5.“

Lóa Pind segir að mögu­lega hafi ein­hver rekið augun í eld­heitar sam­ræður á netinu á milli hennar og vegan­ista „þar sem áður­nefndir skítakleprar hafa dunið á mér og þáttunum“ eins og Lóa lýsir.

Hún segir nokkuð ljóst að þessar niður­stöður – og margt fleira í þáttunum – hafi reitt margan vegan­istann til reiði.

Sjá einnig: Lóa Pind með játningu: Þess vegna er hún ekki lengur vegan

„Þar hefur líka verið mál­efna­leg gagn­rýni og ég hef reynt að svara eins mörgum og ég hef komist yfir. Skondnust fannst mér þó at­huga­semdin frá konunni sem fannst um­fjöllun um þættina “vægast sagt lé­leg og lág­kúru­leg. Vesa­lings konunni til skammar.” Alt­so mér. En hafði þó ekki séð þættina.“

Lóa Pind nefnir svo tvennt í við­bót.

„A) þessi til­raun gerði mig ekki að græn­kera. En hún varð til þess að breyta matar­æði okkar fjöl­skyldunnar þannig að kol­efnis­sporið er núna um­tals­vert minna en fyrir til­raun. B) Mark­mið þessarar þátta­raðar var að tala við okkur meðal-Ís­lendingana, sem borðum kjöt og ost og fisk og elskum það. Það er nefni­lega held ég ekki væn­leg leið að hjarta kjöt­ætu að drulla yfir kjöt­ætur = allan þorra þjóðarinnar.“

Lóa Pind segir að mögu­lega sé væn­legri leið að sýna kjöt­ætum sam­kennd um að erfitt geti verið að skipta um matar­æði, en jafn­framt sýna að það sé hægt.

„Og það gerðum við til­rauna­dýrin svika­laust í þessari þátta­röð. Og ég vona svo sannar­lega - og heyrist það í fjöl­mörgum skila­boðum sem ég hef fengið - að gleði okkar (flestra) til­rauna­dýranna yfir því að prófa eitt­hvað nýtt, átta sig á á­hrifum matar­æðis á kol­efnis­spor, smakka ó­væntar matar­tegundir, víkka matar­sjón­deildar­hringinn sinn og finna um­ami í plöntu­fæði - hafi smitast yfir á ein­hverja kjöt­ætu­á­horf­endur!“