Hópur unglingspilta í Kópavogi virðist hafa gert sér að leik í gærkvöldi að kasta ketti í veg fyrir bifreið á Nýbýlavegi. Kristinn Ólafur Smárason Kópavogsbúi vakti athygli á málinu í Facebook-hópnum Íbúar í Digranesi í morgun og ræddi hann málið við fréttavef Vísis í kjölfarið.
Í færslunni sagði Kristinn:
„Ég varð vitni að mjög óskemmtilegu atviki í gærnótt um hálf eitt leytið þegar hópur af 7 unglingsstrákum hentu ketti fyrir bíl á Nýbýlaveginum. Kötturinn lifði af en var greinilega laskaður og stökk yfir girðinguna í átt að Ástúni þegar strákarnir nálguðust hann aftur. Ef þú átt kött sem kom heim slasaður í nótt þá gæti þetta verið orsökin.“
Í samtali við Vísi lýsir hann því að hann geti ekki verið 100% viss um hvað gerðist þó hann telji annað nánast útilokað, meðal annars miðað við viðbrögð drengjanna og þá staðreynd að hann heyrði þá tala um að hafa kastað einhverju fyrir bílinn. Drengjahópurinn tvístraðist þegar ökumaður bifreiðarinnar stöðvaði og snéri við. Lögreglan var látin vita af málinu en ekki liggur fyrir hvort náðst hafi til drengjanna.
Málið hefur vakið hörð viðbrögð meðal dýravina, meðal annars í fjölmennum hópi katta- og dýravina á Facebook. Þar segir í einni færslu: „Þetta er ástæðan að ég fer með mína i bandi út því ég treysti engu fólki. Hvernig getur fólk verið svona skemmt?“
Þá segist annar hafa orðið vitni að ljótu atviki í Smáranum þegar drengir gáfu mávi brauð að borða áður en þeir keyrðu yfir hann. „Mér flökraði þessi aðferð ungs fólk.“