Ljós­mæður á Ís­landi minnast Elísa­betu: „Fyrsta konungs­borna konan til að hafa eigin­mann við­staddan barns­fæðingu“

Face­book síðan heima­fæðingar- ljós­mæðra­þjónusta minnast þess þegar Elísa­bet Bret­lands­drottning fæddi sitt fjórða barn.

„Drottningin var fyrsta konung­­borna konan sem vitað er til að hafi haft eigin­mann sinn við­staddan barns­­fæðingu. En það gerði hún, og Prins Philip var við­staddur þegar hún fæddi þeirra fjórða barn, Prinsinn Edward,“ segir í færslunni.

„Drottningin, sem þá var 37 ára gömul, bað Philip um að vera við­staddan þar sem hún hafði lesið sér til um að það gæti verið mikill stuðningur í því og hún heillaðist af hug­­myndinni. Þannig varð Philip fyrsti faðirinn í konungs­fjöl­­skyldunni til að vera við­staddur fæðingu barns síns.“

„Líkt og móðir Elísa­betar hafði gert, fæddi Elísa­bet fyrsta barnið sitt, Prinsinn Charles, með keisara­­skurði á heimili sínu, eftir að hafa verið í 30 klukku­­stundir í hríðum.
En hún fæddi þrjú börnin sín sem á eftir komu, einnig á heimili sínu, um leg­­göng. Kallað á enskunni VBAC - eða vaginal birth after ceasarean,“ segir þar enn fremur.