Gunnar Birgisson, íþróttafréttamaður á RÚV og fótboltaþjálfari yngri flokka Breiðabliks, hefur birt ótrúlega lýsingu úr íslenskum samtíma á Twitter. Þar lýsir hann þegar 8 ára strákur kom grátandi til hans:
„Á 6.flokks æfingu í dag kom til mín grátandi strákur, ofboðslega lítill í sér.
„Ég kann ekkert í fótbolta lengur,“ sagði drengurinn.
„Svona svona það er nú ekki rétt,“ svaraði Gunnar.
„Jú, ég er búinn að vera í sóttkví í 4 vikur og get ekki neitt,“ sagði drengurinn.
Gunnar segir:
„8 ára gamalt barn í stofufangelsi í fjórar vikur.“
Hann segir að sóttvarnaraðgerðir séu komnar út fyrir öll þolmörk:
„Þetta er komið útfyrir öll þolmörk. Afleiðingar aðgerða á meinlausa flensu gagnvart þessum hópi er stórkostlegt áhyggjuefni. Þætti mjög fróðlegt að vita hvort þetta sé yfir höfuð tekið með í reikninginn þegar tilefnislausar aðgerðir eru settar á.“
Birgir nokkur spurði hvort það væri ekki full djúpt í árina tekið að tala um „skaðlausa veiru“, Gunnar svaraði:
„Jú, það er rétt hjá þér. Kom þessu illa frá mér. En breytir þó ekki vangaveltum manns varðandi meðhöndlun barna í gegnum þessa veirutíma.“