Bæjarstjóri Akureyrar: „Akureyringar eru hlýðnir“

Norðanlands hefur ekki verið vart mikilla covid smita

Nýtt fyrirkomulag tekur gildi næsta19.ágúst, miðvikudag þar sem allir farþegar til Íslands þurfa að fara í tvær skimanir áður en þeim er hleypt út í samfélagið. Fyrst við landamærin og svo að nokkrum dögum liðnum meðan þeir hafa beðið er í sóttkví.

Ferðaþjónustan hefur sagt þetta rothögg á greinina.

Ásthildur Sturludóttir, bæjarstjóri á Akureyri segir þetta slæmt fyrir ferðaþjónustuna en helstu gestirnir í suma hafi verið Íslendingar á ferð um landið. Bæjarbúar hafi farið mjög strangt að reglum sóttvarnarlæknis og bærinn sloppið við mikil smit og sóttkví. „En að sjálfsögðu mun þetta skapa vandamál og verða ferðaþjónustunni“, segir Ásthildur í samtali við Lindu Blöndal í þættinum 21 í kvöld.

Er heilsugæslan á Akureyri tilbúin að taka við meira álagi á skimun?

„Þeir hafa meðal annars verið áður að breyta um húsnæði til að geta aukið afköstin í skimunum“

„Heilt yfir hafa verið tiltölulega fá veikindi hér en það er nú bara þannig að Akureyringar hlýta fyrirmælum“, segir Ásthildur, það hafi verið lítið um smit fyrir norðan. „Fólk er hlýðið“, segir Ásthildur