Lítið fyrir­tæki sem varð til í haust gefur hluta af tekjum sínum til góð­gerðar­mála

Lítið fyrir­tæki á Akur­eyri sem stofnað var fyrir að verða þremur mánuðum af­henti góð­gerða­fé­lagi á Akur­eyri styrk á dögunum. Fyrir­tækið sem um ræðir, Traust­Val ehf., sér­hæfir sig í þrifum á rusla­tunnum.

Um miðjan nóvember­mánuð á­kváðu eig­endurnir, Trausti og Valur, að gefa til sam­fé­lagsins sem þakk­lætis­vott fyrir góðar við­tökur á markaðnum á þessum annars erfiðu tímum. Á­kváðu þeir að gefa sem nemur 25% af þrifum á tunnum frá 15. nóvember til 20. desember til góð­gerðar­mála.

Á dögunum voru fylgj­endur fyrir­tækisins á Face­book spurðir hvaða góð­gerða­fé­lag þeir vildu að fyrir­tækið styrkti. Flestir nefndu Matar­gjafir á Akur­eyri og ná­grenni og var fé­laginu af­hentur fyrsti hluti styrksins í gær.

„Við erum stoltir og á­nægðir með að geta tekið þátt í því grettis­taki sem þær lyfta,“ segir á Face­book-síðu fyrir­tækisins.