Valmundur Valmundsson formaður Sjómannasambandsins er harðorður í Fréttablaðinu í dag þar sem han ræðir aðstæður sjómanna og andlega heilsu þeirra.
Tilefnið er frétt Fréttablaðsins af máli sjómanns hjá Brimi sem var sagt upp eftir að hafa orðið fyrir röð andlegra áfalla.
Valmundur er stóryrtur í Fréttablaðinu og segist stundum fá á tilfinninguna að ekki sé borin virðing fyrir störfum sjómanna. „Að sjómenn, þessir djöflar, fái bara svo andskoti gott kaup að hægt sé að láta allt yfir þá ganga,“ segir Valmundur.