Listaverk Margeirs heitins komið heim: „Komið og fáið ykkur kaffibolla með honum í portinu“

Strætóskýli við Njarðargötu sem Hringbraut fjallaði um á dögunum hefur verið flutt í portið við skemmtistaðinn Prikið í Bankastræti.

Umrætt skýli hefur tilfinningalegt gildi fyrir marga enda er það skreytt andlitsmynd sem listamaðurinn Margeir Dire heitinn málaði. Margeir lést langt fyrir aldur fram árið 2019, en hann var á 34. aldursári. Hann var þekktur fyrir allskonar falleg verk, til dæmis vegglistaverk, teikningar og hönnun og naut hann mikillar virðingar innan listageirans.

Geoffrey Þór Huntington-Williams, einn eigenda Priksins, skrifaði færslu á dögunum sem fór víða en í henni hvatti hann borgina til að varðveita skýlið og þar með listsköpun Margeirs.

Óhætt er að segja að ákall Geoffrey hafi skilað árangri því nú hefur skýlið verið flutt og því komið fyrir í portinu við Prikið sem var einskonar heimavöllur Margeirs.

Í færslu sem birtist á Facebook-síðu Priksins í morgun segir: „Við á Prikinu tókum eftir gamalgrónu strætóskýli sem sat við Njarðargötu, sem er merkilegt fyrir þær sakir að það hýsir andlitsmynd málaða af listamanninum Margeir Dire. Vöktum við athygli á málefninu og kom upp sú hugmynd að við gætum fengið skýlið til varðveislu í portinu okkar, sem hefur verið óformlegur sýningarsalur veggjalistar í miðborginni undanfarin áratug.“

Það er skemmst frá því að segja að þetta gekk hratt og vel fyrir sig og er Reykjavíkuborg færðar bestu þakkir fyrir liðleikann og samstarfið.

„Skýlið er komið á sinn heimastað í bili, heimavöllur Margeirs var og er ennþá Prikið Bankastræti. Munum við gæta þess og halda við. Einnig verður sett verður plexiglers-plata yfir álverkið til að halda verkinu öruggu. Komið og fáið ykkur kaffibolla með honum í portinu. Við sjáumst hér og Margeir að eilífu.“

Saga af strætó skýli. Við á Prikinu tókum eftir gamalgrónu strætóskýli sem sat við Njarðargötu, sem er merkilegt fyrir...

Posted by Prikið Kaffihús on Þriðjudagur, 9. mars 2021