Lísa fékk sér á snípinn og var bönnuð

Það er beinlínis stórkostlegt að heyra og sjá útvarpskonuna landsfrægu, Lísu Pálsdóttur lýsa því hvernig kabarettpönksveitin Kamarorghestar, sem hún söng og lék með um árabil, ögraði forpokuðu samfélaginu á Íslandi á áttunda og níunda áratug síðustu aldar, en sveitin sendi frá sér hljómplötur með textum sem þóttu svo dónalegir að Ríkisútvarpið, seinni tíma vinnustaður Lísu, bannaði þá um hæl.

Þar á meðal var lagið Bíttu í rassgatið á þér, sem samið var um ofbeldisfullan framgang lögreglunnar í garð nýtilkomins frjálsræðis unga fólksins á Íslandi, sem var að gera uppreisn gegn stakri íhaldssemi ráðandi afla, en sýnu kræfari var kannski lagið sem Lísa samdi textann við – og fjallaði um að fá sér á snípinn. Það gat ríkið ekki spilað með nokkru móti.

Sagan á bak við textann er sú að strákarnir í bandinu, sem starfaði aðallega í Köben, státuðu sig gjarnan af því að fá sér á broddinn á þessum tímum frjálsra ásta – og Lísa vildi náttúrlega ekki vera minni manneskja á nýjum tímum kvenfrelsis og rauðsokka, og skrifaði því niður þennan svakalega texta þar sem hún toppaði strákana í orðalagi. Hún gæti fengið sér á snípinn eins og þeir á broddinn – og hana nú og hafiði það.

Hér má sjá og heyra Lísu rifja upp þessa óborganlegu tíma.