Linda vill að kostnaður við útfarir verði alfarið greiddur úr ríkissjóði

Linda Hrönn Þórisdóttir, frambjóðandi á lista Framsóknarflokks fyrir komandi Alþingiskosningar, leggur til að kostnaður við útfarir verði alfarið greiddur úr ríkissjóði.

„Vissulega er um mikla fjármuni að ræða miðað við hver núverandi kostnaður er við útfarir. En þar sem dauðinn er óhjákvæmilegur hjá okkur öllum ætti það að vera sjálfsagður hlutur að skattfé okkar sé varið í útfarir okkar,“ segir Linda í aðsendri grein á vef Vísis.

Linda, sem býður sig fram í 2. sæti á lista Framsóknarflokks í suðvesturkjördæmi, bendir á að kostnaðurinn við útför sé á að giska frá um 300 þúsund krónur til 1,5 milljón miðað við gjaldskrá útfararþjónustu.

„Það er svo sem enginn sem skikkar fólk til að hafa útför með öllum þeim kostnaðarliðum sem þar eru taldir fram og eflaust væri hægt að jarða ástvini sína með minni tilkostnaði. Það hafa hins vegar skapast ákveðnar hefðir í samfélaginu varðandi þessar athafnir og eðlilega vilja aðstandendur tryggja sínum látna ástvini útför í samræmi við þá staðla,“ segir hún.

Ef ríkissjóður myndi standa straum af kostnaði við útfarir borgaranna telur Linda að það fyrirkomulag gæti gefið okkur tækifæri til að endurmeta hvernig tilhögun útfara er í dag og hvort við viljum skapa nýjar hefðir og venjur samhliða þeim.

„Áður en kórónuveiran hóf innreið sína var algengt að gestir við útfarir fóru beint í erfidrykkju þess látna og voru jafnvel búnir að borða sig sadda af brauðtertum, pönnukökum og marsípankökum áður en nánustu aðstandendur komu þangað úr kirkjugarðinum og jafnvel voru hluti gestanna þá farnir á brott. Því miður hefur tilstandið í kringum útfarir oft orðið til þess að það skortir persónulega nálgun en eftir standa ástvinir með bæði söknuð og háan reikning fyrir útförinni,“ segir Linda sem endar grein sína á þessum orðum:

„Tölum um dauðann og tölum um hvernig við viljum hafa fyrirkomulag útfara. En tryggjum fyrst og fremst að fjárhagsáhyggjur vegna útfara bætist ekki á þær áhyggjur sem eftirlifandi ástvinir hafa.“