Linda Hrönn Þórisdóttir, leiðtogi innlendra verkefna hjá Barnaheillum – Save the Children á Íslandi, hvetur fólk til að kíkja í skúrinn eða geymsluna. Um allan bæ leynist hjól sem ekki eru í notkun og taka óþarfa pláss og enda ævi sína í málmpressu á endurvinnslustöðum.
„Á sama tíma eru fjölmörg börn og ungmenni sem eiga ekki hjól og geta því ekki tekið þátt í þeirri hjólamenningu sem er ríkjandi. Þar með missa þau af að geta mætt á eigin hjólum á hjóladag í skólanum, hjólað um allar trissur með félögum sínum og þar með efla félagslegan og líkamlegan þroska,“ segir Linda í grein sem hún skrifar á vef Vísis.
Hún bendir á að árlega fái um 300 börn og ungmenni hjól úr Hjólasöfnun Barnaheilla – Save the Children á Íslandi.
„Þetta eru börn sem búa við þannig fjárhagslegar og/eða félagslegar aðstæður að þeim gefst ekki af öðrum kosti tækifæri til að eignast hjól. Oftar en ekki eru börn að fá í hendurnar sitt fyrsta hjól og sjá þar með loksins fram á að geta tekið þátt í hjólamenningunni jafnt á við önnur börn.“
Linda segir að um 10.000 börn, eða 13,1%, búi við fátækt á Íslandi og um eitt af hverjum fjórum heimilum eigi erfitt með að standa straum af daglegum útgjöldum, samkvæmt í nýútkominni skýrslu Barnaheilla.
„Með hjólasöfnuninni er með beinum hætti stuðlað að jöfnum tækifærum allra barna. Á öllum móttökustöðvum Sorpu á höfuðborgarsvæðinu eru nú merktir gámar fyrir hjól sem ekki eru í notkun meðan á söfnuninni stendur, til 1. maí næstkomandi. Hjólin eru reglulega sótt og sjálfboðaliðar sjá um að gera við hjólin undir styrkri leiðsögn Reiðhjólabænda sem eru nýr samstarfsaðili í verkefninu. Viðgerðum hjólum er svo úthlutað í gegnum félags- og fjölskylduþjónustu sveitarfélaga.“
Linda segir að Með því að gefa börnum tækifæri á að eignast hjól sé ekki eingöngu stuðlað að aukinni þátttöku þeirra í samfélaginu eins og kveðið er á um í Barnasáttmálanum heldur sé staða allra barna jöfnuð.
„Börn fá með hjólreiðum tækifæri til að efla þol, styrk og fá heilbrigða útrás. Sjálfbærni er auk þess sterk skírskotun í verkefnið en hjól fá lengra líf í stað þess að verða pressuð. Þetta er í tólfta sinn sem söfnunin er haldin en frá upphafi hafa um 3.500 börn notið góðs af verkefninu,“ segir Linda sem endar pistilinn á þessum orðum:
„Ef þú lumar á hjóli sem ekki er í notkun getur þú komið því á endurvinnslustöðvar Sorpu á höfuðborgarsvæðinu. Sjálfboðaliðar eru einnig velkomnir að hjálpa til við viðgerðir á hjólunum svo öll börn og ungmenni sem á þurfa að halda fái hjól.“