„Aðgát skal höfð í nærveru sálar. Þessi orð Einars Ben. eiga ekki við í umferðinni. Ekki það að maður sé beinlínis vondur þar við fólk, heldur brjótast fram mestu og verstu brestir manns nánast daglega á leið heim í umferðaröngþveiti,“ skrifar blaðamaðurinn Linda Blöndal í bakþönkum Fréttablaðsins.
„Ein sem ég vinn með var í 75 mínútur á leið heim til sín eftir vinnu í gær upp í Árbæ. Þegar þyngslin eru sem mest á leið heim verð ég vond inni í mér af óþolinmæli og algerri fjarveru einhvers konar æðruleysis. Sjálf finn ég hreinlega hatursfullar hugsanir heltaka mig gagnvart bílstjóranum sem gefur mér ekki séns til að skipta um akrein eða komast inn á eina þeirra og fer kannski ruddalega fram fyrir mig,“ skrifar Linda.
„Þessar ömurlegu kenndir eru sérstaklega gagnvart flottu bílunum, Range Roverum og Land Rover, Teslu og þessum dýru flottu sem mér finnst montið fólk aka á – sjaldnar gegn Yaris, eins og ég er á sjálf – en kemur þó líka fyrir á verstu dögunum. Eftir góðan nætursvefn fer ég stundum að velta fyrir mér yfir morgunkaffinu af hverju maður lætur svona,“ bætir hún við.
Linda segir að þessi hamskipti og þessar eitruðu neikvæðu hugsanir sem gera mann sjálfan svo örmagna að maður getur varla eldað kvöldmat þegar heim er komið.
„Maður þarf að aðgæta sitt eigið sálartetur. Sumt er bara eins og það er,“ skrifar Linda að lokum.