Lilja Dögg Alfreðsdóttir, ferðamála-, viðskipta- og menningarmálaráðherra, minnist móður sinnar, Guðnýjar Kristjánsdóttur, sem féll frá í gær.
„Elsku besta mamma, stoð okkar og stytta og fyrirmynd í lífinu féll frá á aðfangadagsmorgun. Hennar er sárt saknað,“ segir Lilja í færslu á Facebook-síðu sinni. Guðný var fædd 12. ágúst 1949 og var því 72 ára. Hún giftist Alfreð Þorsteinssyni sem féll frá vorið 2020 og eignuðust þau tvær dætur, Lilju og Lindu Rós.
Lilja birtir meðfylgjandi texta eftir Braga Valdimar Skúlason við lagið Líttu sérhvert sólarlag sem er einnig eftir Braga.
Líttu sérhvert sólarlag
Sérhver draumur lifir aðeins eina nótt
sérhver alda rís en hnígur jafnan skjótt
hverju orði fylgir þögn
og þögnin hverfur alltof fljótt.
En þó að augnablikið aldrei fylli stund
skaltu eiga við það mikilvægan fund
því að tár sem þerrað burt
aldrei nær að græða grund.
Líttu sérhvert sólarlag,
sem þitt hinsta væri það.
Því morgni eftir orðinn dag
enginn gengur vísum að.
Þú veist að tímans köldu fjötra enginn flýr
enginn frá hans löngu glímu aftur snýr.
Því skaltu fanga þessa stund
því fegurðin í henni býr.
Líttu sérhvert sólarlag,
sem þitt hinsta væri það.
Því morgni eftir orðinn dag
enginn gengur vísum að.
Líttu sérhvert sólarlag,
sem þitt hinsta væri það.
Því morgni eftir orðinn dag
enginn gengur vísum að.
Lag og texti: Bragi Valdimar Skúlason