Kvikugangurinn undir Fagardalsfjalli virðist liggja mjög grunnt, eða um það bil kílómetra undir yfirborðinu. Líkurnar á gosi á svæðinu í kringum fjallið hafa aukist og teljast nú verulegar.
Veðurstofa Íslands greinir frá þessu, en það kemur fram í niðurstöðum aflögunarlíkana sem gerð voru í dag.
Fram kemur að kvikuinnflæðið sé nokkuð ört, og sé hraðinn næstum því tvöfaldur frá því sem var í aðdraganda fyrra gossins sem hófst í byrjun árs 2021.