Líkir Pútín við Hitler: Gleymist að Hitler var lengst af talinn hinn fínasti pappír

Pétur Gunnars­son, einn þekktasti rit­höfundur landsins, líkir Vla­dimír Pútín Rúss­lands­for­seta við Adolf Hitler, ein­ræðis­herra Þýska­lands á árunum 1933 til 1945.

Pétur birtir grein í Frétta­blaðinu í dag.Þar bendir hann á að það gleymist oft að Hitler hafi lengst af á sinni tíð verið talinn fínasti pappír. Hann hafi meðal annars prýtt for­síðu Times sem stjórn­mála­maður ársins 1938 og komið til á­lita sme friðar­verð­launa­hafi Nóbels ári síðar, sama ár og síðari heims­styrj­öldin hófst.

„Það er á­­stæða til að rifja þetta upp nú þegar austur í Rúss­landi er risinn leið­­togi sem minnir á fátt annað en Adolf í að­­draganda heims­­styrj­­aldarinnar síðari. Og hefur sér til full­tingis hlið­­stæðuna við Göbbels, sem nú heitir Lavrov,“ skrifar Pétur í blað dagsins.

Pétir segir Pútin horfa á sama hátt til hruns Sovét­­ríkjanna og Hitler not­­færði sér niður­­lægingu Þjóð­verja eftir fyrri heims­­styrj­­öldina. Og fari fyrir vikið jafn mikinn í yfir­­­ganginum.

„Annað sem kallar á saman­burð við Hitlers­­tímann er ó­­svífnin í mál­flutningnum, hvernig blá­­köldum stað­­reyndum er neitað og svart sagt hvítt. Þannig varðar það 15 ára fangelsi ef ein­hver vogar sér að halda því fram að rúss­neski herinn hafi ráðist inn í Úkraínu …“

Pétur segir það vekja hjá sér mestan ugg „hve ræki­lega þeir Pútín/Lavroff hafa drullað upp á bak, svo mjög að erfitt er að sjá að Rúss­land undir þeirra stjórn eigi aftur­kvæmt í sam­fé­lag þjóðanna. Þegar eins var komið fyrir þeim Hitler og Göbbels styttu þeir sér og sínum aldur og reyndu að draga heiminn með sér í fallinu. Og munaði ekki nema því sem munaði að það tækist. Nú er sá munur ekki lengur til staðar, Pútín heldur á vopninu sem Hitler van­hagaði um og hefur þegar hótað að beita því.“

Grein Péturs í heild sinni í Frétta­blaðinu í dag