Líkir Hannesi við „þröng­sýn­an aft­an­í­oss­a“ í rifrildi um prófkjörið

Lögmaðurinn Sveinn Andri Sveinsson birti sína greiningu á nýliðnu prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, á Facebook síðu sinni í morgun og kallaði hana outsider greiningu manns með insider sýn. Greining Sveins er svohljóðandi:

Grasrót Sjálfstæðisflokksins hafði betur gegn flokkseigendaklíkunni í Valhöll og Morgunblaðsvaldinu í nýliðnu prófkjöri. Niðurstaðan er högg fyrir formann flokksins Bjarna Ben sem unnið hefur leynt og ljóst gegn Guðlaugi Þór. Ekki aðeins stóð Guðlaugur af sér þessa atlögu, þar sem ungum og efnilegum stjórnmálamanni, Áslaugu Örnu, var ýtt út á foraðið gegn honum, heldur var hans nánasti samstarfsmaður Diljá Mist Einarsdóttir sigurvegari prófkjörsins.

Eigendur Morgunblaðsins ættu að einbeita sér alfarið að blaðaútgáfu og hætta afskiptum af prófkjörum og Valhöll ætti að huga að breytingum í stjórnunarstöðum.

Stjórnmálasól Bjarna Ben er hniginn til viðar.

Sjálfstæðismenn fegnir að losna við Svein Andra

Hannes Hólmsteinn Gissurarson prófessor í stjórnmálafræði var ekki sáttur við greiningu Sveins Andra og lýsti vanþóknun sinni í athugasemd við færsluna:

„Það er alltaf jafnleiðinlegur tónn í því, sem þú skrifar um Sjálfstæðisflokkinn. Hin svokallaða greining þín á úrslitum prófkjörsins, sem tókst hið besta, er út í bláinn og sett saman af illum hug,“ skrifar Hannes Hólmsteinn í athugasemd við færslu Sveins.

Svo bað Hannes Svein að hætta að skipta sér af innanflokksmálum Sjálfstæðismanna yfirleitt.

„Við vorum fegin að vera laus við þig og vildum gjarnan, að þú einbeittir þér að því, sem þú hefur vanrækt síðustu árin, og það er að gæta hagsmuna skjólstæðinga þinna.“

Sveinn Andri brást ókvæða við þessari sendingu prófessorsins.

„Þú ert svo mikill lúði að það hálfa væri nóg. Þér er algerlega fyrirmunað að taka þátt í nokkurri umræðu án þess að skensa viðkomandi. Þannig haga sér menn lítilla sanda og sæva; þröngsýnir aftaníossar,“ hóf Sveinn Andri svar sitt og lét fylgja að hann væri í vinnu þótt sunnudagur sé.

„Ólíkt þér þarf ég að vinna fyrir laununum mínum. Ég er ekki svo heppinn að vera áskrifandi að tékka frá skattgreiðendum eins og þú, án nokkurs vinnuframlags; maðurinn sem predikar hvað mest um nauðsyn þess að fara vel með skattpeninga,“ svaraði Sveinn og ítrakaði svo að greining sín á niðurstöðu prófkjörsins væri hárrrétt þótt Hannesi kunni að svíða undan.

„Ég er ekki í þessu yfirborðshjali eins og þú heldur segi bara hlutina eins og þeir eru. Og gjamm í þér eflir mig bara í því að pósta athugasemdum mínum um málefni Sjálfstæðisflokksins, sem vel að merkja klofnaði á vakt Bjarna Ben og hefur verið í örfylgi síðan. Ég efast ekki um að þú ert feginn að ég fór úr Sjálfstæðisflokknum; sjálfur er ég Guðs lifandi feginn að vera ekki sama flokki og þú, enda þrífst ekkert í sambýli við nöðrur.“