Andrés Ingi Jónsson, þingmaður Pírata, deilir aðsendri grein Guðmundar Oddssons, fyrrverandi skólastjóra og fyrrverandi varaþingmanns Alþýðuflokksins sem birtist í Morgunblaðinu í dag, á Twitter síðu sinni. Hann segir athyglisvert að áhrifavaldurinn Edda Falak sé þar hvergi nefnd á nafn.
Þar gerir Guðmundur áhrifavalda að umtalsefni. Þar segist hann hafa horft á Kastljós á dögunum og er nokkuð ljóst að þar á hann við viðtal Kastljóss við Eddu nú á dögunum. „Áhrifavaldurinn í áðurnefndum Kastljósþætti minnti mig óþægilega á talíbanana í Afganistan, þar sem dómharka og ofstæki ráða för,“ segir Guðmundur meðal annars og spyr hvort Íslendingar séu virkilega komnir á sama stað og talíbanar.
„Áhugavert hvað kallar sem skrifa pistla um Eddu Falak vanda sig alltaf að nefna hana ekki á nafn. Svo er pínu fyndið að skrifa 350 orð um að maður eigi ekki eitt einasta orð,“ skrifar Andrés Ingi.
Áhugavert hvað kallar sem skrifa pistla um @eddafalak vanda sig alltaf að nefna hana ekki á nafn.
— Andrés Ingi (@andresingi) September 8, 2021
Svo er pínu fyndið að skrifa 350 orð um að maður eigi ekki eitt einasta orð. pic.twitter.com/JOIYBaqEBx