Lík fannst við Gufunesveg í Grafarvogi í morgun. DV greinir frá þessu og segir að líkið hafi fundist ekki langt frá smáhýsum sem ætluð eru heimilislausu fólki.
Grímur Grímsson, yfirlögregluþjónn miðlægrar rannsóknardeildarinnar lögreglunnar, á höfuðborgarsvæðinu, staðfestir þetta í samtali við DV.
Grímur segir málið til rannsóknar og að of snemmt sé að álykta um hvort eitthvað saknæmt hafi átt sér stað. DV hefur eftir vegfarenda að lögregla hafi verið með talsverð umsvif á vettvangi og um fimmtán lögreglumenn, þar á meðal úr tæknideild, hafi verið að störfum á svæðinu.