Líkamsleifar manns sem lést af slysförum fyrir nokkrum áratugum voru grafnar upp úr kirkjugarði á Vestfjörðum síðastliðinn föstudag. Þetta kemur fram í skeyti sem lögreglan á Vestfjörðum birti á Facebook-síðu sinni nú í hádeginu.
Í tilkynningunni kemur fram að Lögreglustjórinn á Vestfjörðum hafi áður, með vitund og samþykki nánustu aðstandenda hins látna, fengið dómsúrskurð til þessara aðgerða.
„Hópur lögreglumanna af Vestfjörðum, ásamt tveimur tæknideildarmönnum lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, auk réttarlæknis og aðstoðarmanns hans, unnu við uppgröftinn.“
Í tilkynningunni kemur fram að aðdragandi þessarar aðgerðar sé sá að lögreglunni á Vestfjörðum hafði borist ábending um að umrætt slysaatvik hafi ekki verið upplýst nægjanlega á sínum tíma.
„Þrátt fyrir að langur tími sé liðinn eru taldar líkur á því að hægt sé að upplýsa nánar um tildrög atviksins sem um ræðir. Líkamsleifarnar eru nú til rannsóknar hjá réttarlækni og beðið er niðurstöðu þeirrar vinnu. Óvíst er hversu langan tíma þessi réttarlæknisfræðilega rannsókn tekur og ótímabært að veita frekari upplýsingar um mál þetta.“